Föstudagur 10. mars 2017 kl. 12:51
Kannabiseigandi náðist á hlaupum
Lögreglan á Suðurnesjum fann nokkurt magn af kannabisefnum í húsleit sem gerð var í vikunni í íbúðarhúsnæði í umdæminu að fenginni heimild. Húsráðandi hugðist forða sér á hlaupum en lögreglan hljóp hann uppi. Hann var handtekinn og framvísaði efnunum.