Kannabis í koddaveri
	Kannabisefni í koddaveri var það sem varð fyrir lögreglumönnum á Suðurnesjum fundu þegar þeir fóru í hávaðaútkall í húsnæði í umdæminu um helgina. Þegar þeir mættu á vettvang til að skakka leikinn gaust á móti þeim mikil kannabislykt úr íbúðinni.
	
	Húsráðandi heimilaði þeim leit sem leiddi til þess að poki með kannabis fannst í koddaveri í svefnherbergi. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu á vettvangi.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				