Kanna jarðhitavon nærri þéttbýli

hitastigull fáist, og því er nauðsynlegt að hindra niðurrennslið með fóðringum og
steypingum. Að verki loknu verða holurnar hitamældar og fæst þá marktækur hitastigull. Niðurstaðna er að vænta síðar á árinu.
Í fyrra var ein hola boruð í sama skyni nærri Sandgerði (við Rockville), en holurnar sem boraðar voru í haust eru rétt ofan við Njarðvík og Keflavík.
Tilgangur með borununum er að kanna hvort einhver jarðhitavon sé nærri
þéttbýlissvæðunum. Viðnámsmælingar, sem HS fékk Orkustofnun til að framkvæma fyrir nokkrum árum, hafa sýnt útbreidda viðnámslægð á borsvæðinu.
Viðnámslægðin gæti bent til, að lághitasvæði sé undir og mætti hugsanlega nýta það með dælingu úr djúpum borholum, hvort heldur væri til beinna nota eða þá sem varaafl.