Kananum bannað að spila Eurovisionlögin
Útvarpsstöðinni Kananum, sem sendir út frá Reykjanesbæ, hefur verið bannað að spila lögin í undankeppni Eurovision. Þetta fullyrðir Einar Bárðarson útvarpsstjóri Kanans á Facebook-síðu sinni nú áðan.
„Það var hringt frá RÚV rétt í þessu og það er búið að banna Kananum að spila Eurovisionlögin. Samt liggja þau þarna á netinu fyrir alla að hlusta? Þjóðareign í allra þágu? var það ekki slagorðið,“ spyr útvarpsstjóri Kanans og skilur ekkert í símtalinu sem hann fékk frá Ríkisútvarpinu.
Einar útvarpsstjóri endar svo vangavelturnar á því hvort Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri RÚV hafi tekið leyfið til að spila lögin með sér þegar hann hætti í dag.