Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Kanadískur undirofursti styrkti Umhyggju
William Mitchell hleypur eftir Reykjanesbrautinni.
Þriðjudagur 13. júní 2017 kl. 16:10

Kanadískur undirofursti styrkti Umhyggju

-Hljóp Reykjanesbrautina á fjórum og hálfri klukkustund og styrkti langveik börn

„Við höfum fengið mjög góðar móttökur hjá Keflvíkingum,“ segir William Mitchell, undirofursti í kanadíska flughernum og yfirmaður flugsveitarinnar, en í morgun hljóp hann Reykjanesbrautina, heila 46 kílómetra, til styrktar Umhyggju, félags langveikra barna. „Við vildum sýna þakklæti okkar í verki með því að gefa samfélaginu eitthvað til baka og því hafa liðsmenn sveitarinnar safnað fé fyrir Umhyggju.“

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hann segir hlaupið hafa verið býsna erfitt en á sama tíma einstakt tækifæri til að láta gott af sér leiða fyrir þá sem á því þurfi að halda. „Það er afar mikilvægt að láta gott af sér leiða og aðstoða þegar maður getur og ég er mjög stoltur af því að hafa fengið tækifæri til þess,“ sagði Mitchell undirofursti, en hann lauk hlaupinu á fjórum klukkustundum, þrjátíu mínútum og 33 sekúndum.

 

Enn er ekki komið í ljós hve mikið hefur safnast en allt bendir til að takmarkið, 144.000 krónur, hafi náðst.

 

Frá því um miðjan maí hafa um 180 liðsmenn flugsveitar úr kanadíska flughernum haft aðsetur á öryggissvæði Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Sveitin sinnir loftrýmisgæslu á vegum Atlantshafsbandalagsins og getur brugðist við með litlum fyrirvara ef fljúga þarf á móti og bera kennsl á óþekkt loftför.