Kanada sér um lofrýmisgæslu við Ísland
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný með komu flugsveitar Kanadíska flughersins sunnudaginn 3. apríl.
Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Alls munu um 160 liðsmenn kanadíska flughersins taka þátt í verkefninu og koma þeir til landsins með 6 F18 orrustuþotur, auk eldsneytisflugvélar.
Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum 6. – 9. apríl.
Er þetta er í fyrsta sinn sem þjónusta íslenskra stjórnvalda vegna loftrýmisgæslu er í umsjón Landhelgisgæslu Íslands en um áramót bættust starfsmenn íslenska ratsjárkerfisins í hóp starfsmanna Landhelgisgæslunnar.