Kalt en bjart veður
Veðurspá fyrir Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðan 8-10 m/s og bjart veður, en 3-8 og skýjað í kvöld. Austan 8-13 og slydda með köflum á morgun. Hiti kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Hæg norðaustlæg átt og él á víð og dreif, en dálítil slydda sunnanlands. Hvessir um kvöldið, einkum norðvestantil. Hiti 0 til 5 stig sunnan- og vestanlands, en annars vægt frost.
Á föstudag:
Austlæg átt, 5-10 m/s, slydda sunnanlands, dálítil él fyrir norðan, en léttir til suðvestanlands. Hiti um frostmark sunnan- og vestanlands, annars vægt frost.
Á laugardag:
Fremur hæg breytileg átt og víða bjart veður, en stöku él norðantil. Talsvert frost, einkum norðan- og austanlands, en frostlaust við vesturströndina.
Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum, en úrkomulítið fyrir austan. Hlýnandi veður.