Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Kallað eftir hugmyndum bæjarbúa
Mánudagur 25. október 2010 kl. 09:58

Kallað eftir hugmyndum bæjarbúa


Bæjarstjórn Grindavíkur hyggst hefja skipulagsvinnu um mótun miðbæjar í Grindavík og býður bæjarbúum að taka þátt í að móta hugmyndir og forsendur fyrir þá vinnu.

Bæjarstjórn hefur boðað til íbúafundar laugardaginn 30. október frá kl. 10-12 þar sem
Grindvíkingum er boðið til hugmyndasmiðju í Hópsskóla. Þar verður opin umræða um þar hvernig er hægt að stuðla að góðum miðbæ í Grindavík en Festi er m.a. hluti af því viðfangsefni.
„Fundurinn er haldinn til að fá fram hugmyndir, sjónarmið og ábendingar íbúa. Þannig er verið að virkja þá þekkingu sem þeir einir hafa sem búa og starfa á svæðinu.  Þannig fá bæjarbúar tækifæri til að taka þátt í stefnumótun fyrir svæðin og hafa trú á að hægt sé að leysa úr skipulagsmálum þannig að sem flestir geti orðið sáttir,“ segir í fundarboði

Á fundinum verður þess gætt að allir þátttakendur hafi jafna möguleika á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Eftir fundinn mun Alta vinna úr skilaboðum íbúafundarins og greina stöðu og möguleika í skipulagi svæðisins. Til þess að flestir sjái sér fært að mæta verður barnapössun í boði á staðnum.

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson - Horft yfir Grindavík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024