Kalla eftir sveigjanleika vegna gleymdra aðgangskorta
Umræður voru á síðasta fundi ungmennaráðs Suðurnesjabæjar um óánægju vegna aðgangskorta í kjölfar aðgangshliða í íþróttamiðstöðvum bæjarins. Börn muna illa eftir að hafa kortin með sér og umræður voru um hvort það væri hægt að hafa möguleikann á hafa þau rafræn.
Lagt er til að starfsfólk íþróttamiðstöðva sýni sveigjanleika þegar fólk gleymir kortunum sínum og fulltrúar ungmennaráðsins kanni hvort möguleiki á að hafa rafræna útfærslu á aðgangskortunum, segir í afgreiðslu ráðsins.