HSS
HSS

Fréttir

Kálfatjarnarsókn: Vilja auglýsa eftir nýjum sóknarpresti
Laugardagur 25. nóvember 2006 kl. 14:28

Kálfatjarnarsókn: Vilja auglýsa eftir nýjum sóknarpresti

Á almennum safnaðarfundi í Kálfatjarnarsókn í Tjarnaprestakalli í Vogum sl. miðvikudag var ákveðið að auglýsa embætti sóknarprests laust til umsóknar. Skipunarrtíma núverandi sóknarprests, Carlosar Ferrer, lýkur í september á næsta ári, en skv. lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar verður ákvörðun um að auglýsa embættið að liggja fyrir a.m.k. átta mánuðum fyrir lok skipunartímans.

Eftirfarandi er fréttatilkynning frá sóknarnefnd Kálfatjarnarsóknar:

Miðvikudagskvöldið 22. nóvember var haldinn almennur safnaðarfundur í Kálfatjarnarsókn í Tjarnaprestakalli í Vogum. Ástæða fundarins var sú að sóknarnefndinni hafði borist ósk frá nokkrum sóknarbörnum þar sem farið var þess á leit við sóknarnefnd að hún héldi fund þar sem kosið væri um hvort auglýsa ætti starf sóknarprestsins laust til umsóknar, en sóknarnefnd er samkvæmt lögum skylt að verða við slíkri beiðni, komi hún upp áður en 5 ára ráðningartíma sóknarprests lýkur.

Líflegar umræður voru á fundinum og í lok umræðna var lögð fram til atkvæða tillaga um hvort sóknarbörn Kálfatjarnarsóknar í Tjarnaprestakalli vildu óska eftir því að auglýst yrði eftir nýjum sóknarpresti. 68 sóknarbörn greiddu atkvæði um tillöguna, 51 voru fylgjandi tillögunni en 17 á móti. Niðurstaðan verður nú send biskupsstofu.

Sóknarnefnd  Kálfatjarnarsóknar
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn