HSS
HSS

Fréttir

Kaffitár byggir nýjar höfuðstöðvar í Njarðvík
Þriðjudagur 26. nóvember 2002 kl. 09:58

Kaffitár byggir nýjar höfuðstöðvar í Njarðvík

Kaffitár auglýsti um síðustu helgi eftir tilboðum í smíði á nýjum höfuðstöðvum fyrirtækisins sem munu verða að Stapabraut 7 í Njarðvík. Tilboð verða opnuð 19. desember næstkomandi.Höfðstöðvar fyrirtækisins verða um 1330 fermetrar að grunnfleti, þar af verður verksmiðjuhúsið tæpir 900 fermetrar og skrifstofur, sérhæfð smökkunaraðstaða og veitingasalur rúmir 400 fermetrar. Hönnun hússins miðaði að því að nýja brennsla Kaffitárs verði eins konar Mekka kaffisins á Íslandi. Helgi Már Halldórsson hjá ASK arkitektar Skógahlíð er aðal hönnuður hússins.

Í höðfuðstöðvunum verður aðstaða til að bjóða upp á námskeið og taka á móti hópum sem vilja fræðast um kaffiræktun og kaffiframleiðslu. Í móttökusal verður expressóbar og verslun. Í húsnæðinu verður sérútbúið rými fyrir kaffismökkun og tilraunir sem mun koma að góðum notum þar sem fyrirtækið hefur staðið fyrir öflugu þróunarstarfi og athyglisverður tilraunum, m.a. á mjólk. Í húsnæðinu verður fullkomin aðstaða til að þjálfa kaffibarþjóna, enda segist Aðalheiður Héðinsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtæksins vilja halda áfram að eiga kaffibarþjóna sem skipa sér á bekk með fremstu fagmönnum á þessu sviði í heiminum. Í nýju höfuðstöðvunum verður einnig iðnaðareldhús með tilheyrandi aðstöðu og kæligeymslum.

Áætlað að verktakar muni skila verkinu af sér fullfrágengnu í október 2003.

Kaffitár er nú með kaffibrennslu í 400 fermetra húsnæðí á annarri hæð að Holtsgötu 52 í Njarðvík. Þetta húsnæði er nú þegar orðið allt of lítið fyrir starfsemina sem hefur vaxið hratt á undanförnum árum. Hver krókur og kimi er nýttur til hins ýtrasta, en hjá fyrirtækinu vinna 15 starfsmenn í Njarðvík
Bílakjarninn
Bílakjarninn