Bygg
Bygg

Fréttir

Kaffihús kaffitárs gefa alla sölu í dag til söfnunarinnar
Laugardagur 15. janúar 2005 kl. 13:36

Kaffihús kaffitárs gefa alla sölu í dag til söfnunarinnar

Kaffihús Kaffitárs eru opin í dag að venju og gefa alla sölu til söfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri. Starfsfólk fyrirtækisins gefur einnig alla vinnu sína. Kaffitár flytur inn kaffi frá mörgum stöðum í heiminum og meðal annars frá Aceh héraði á eynni Súmötru. Kaffipokinn af Súmötru kaffi er seldur á 700 krónur og rennur allt til söfnunarinnar. Kaffitár rekur kaffihús í Kringlunni, Bankastræti, Keflavíkurflugvelli og í Reykjanesbæ.
Bílakjarninn
Bílakjarninn