Jörð skelfur við Krýsuvík
Jarðskjálfti upp á M2,7 varð í dag kl. 13:40 um 6 km norðaustur af Krísuvík. Skjálftinn fannst á höfuðborgarsvæðinu, skv. upplýsingum Veðurstofu Íslands.
Talsvert af smáum skjálftum hafa mælst síðustu daga og vikur allt frá Reykjanestá og austur fyrir Krýsuvík. M.a. hefur verið mikið um smáskjálfta við Grindavík og nokkrir þeirra hafa fundist í byggð.