Jörð skelfur við Keili
Jarðskjálfti af stærðinni M3,5 varð 0,8 km suð-suðvestur af Keili rétt eftir kl. 11 í morgun. Annar skjálfti að stærðinni M3,0 varð á sama stað rétt fyrir klukkan tvö í nótt.
Jarðskjálftahrina hefur staðið yfir á svæðinu suð-suðvestur af Keili síðan á laugardag. Í gær voru skjálftarnir yfir 100 talsins og frá miðnætti skipta þeir mörgum tugum.
Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við RÚV ekki vitað hvort þetta séu flekahreyfingar eða kvikuhreyfingar. Ekki séu merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið.
Jarðskjálftarnir sem nú eru að mælast eru nyrst á þeirri línu þar sem kvikuinnskotið var staðsett í aðdraganda eldgossins í Fagradalsfjalli.