Jóna Kristín verður næsti bæjarstjóri í Grindavík
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir verður næsti bæjarstjóri í Grindavík samkvæmt málefnasamningi sem Samfylkingin þar í bæ vinnur að með framsóknarmönnum eftir að Samfylkingin sleit meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn við Sjálfstæðisflokkinn í gær. Málefnasamningur nýs meirihluta verður kynntur í kvöld. Jóna Kristín vísar því á bug að sjálfstæðismenn hafi fyrst heyrt af málinu í fjölmiðlum.
Í gærkvöldi var á visi.is haft eftir Sigmari Eðvarssyni, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, að þessi tíðindi kæmu honum á óvart og hann hafi frétt af stjórnarslitunum í fjölmiðlum undir kvöld.
Jóna Kristín vísar þessu alfarið á bug í samtali við VF. Hún segist hafa verið í símasambandi við Sigmar í gærdag og í hádeginu hafi formaður flokksins í Grindavík fengið formlegt bréf þess efnis að samstarfinu væri slitið. Auk þess hafi öllum átt að vera það ljóst fyrir síðustu helgi að snuðra væri hlaupin á þráðinn. Ástæðan fyrir stjórnarslitunum hafi verið skortur á samráði og trúnaði, eins og komið hafi fram í bréfinu. „Ég veit ekki hversu skýrar það gat verið,“ segir Jóna Kristín.
Samkvæmt samkomulagi nýs meirihluta verður S-listinn með forseta bæjarstjórnar og B-listinn formann bæjarráðs.