Jón Ingi ráðinn innkaupastjóri Reykjanesbæjar
- Alls sóttu 24 um starfið
Jón Ingi Benediktsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn í starf innkaupastjóra á fjármálasviði Reykjanesbæjar. Jón Ingi er með B.S. gráðu í viðskiptafræði á sviði vörustjórnunar frá Tækniskóla Íslands. Á vef Reykjanesbæjar segir að hann eigi að baki farsælan feril og hafi síðasta aldarfjórðunginn meðal annars gegnt starfi deildarstjóra reksturs og innkaupa hjá Ríkisútvarpinu og verið þar í forsvari fyrir innkaupastefnu og leitt fjölmörg krefjandi verk á sviði innkaupamála. Frá árinu 2014 hefur Jón Ingi starfað sem ráðgjafi hjá Hagvangi við að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að bæta innkaup þeirra.
Jón Ingi Benediktsson er metinn uppfylla vel allar hlutlægar og huglægar hæfiskröfur og er talinn standa öðrum umsækjendum framar þegar á heildina er litið svo sem vegna þekkingar á lögum og reglum um opinber innkaup, þ.m.t. útboðum, reynslu af mótun og innleiðingu innkaupastefnu auk haldgóðrar reynslu af rekstri innan opinberrar stjórnsýslu.
Alls 24 sóttu um starf innkaupastjóra. Auk Jóns Inga voru það eftirfarandi:
Albert B. Hjálmarsson
Arnar Már Elíasson
Ágúst Fjalar Jónasson
Bjarnhéðinn Guðlaugsson
Einar Kristjánsson
Elísabet María Þórhallsdóttir
Grétar Erlingsson
Grímur Steinn Karlsson
Helga Helgadóttir
Hólmgrímur Þorststeinsson
Konráð Gylfason
Kristinn Karel Jóhannsson
Kristinn Leví Aðalbjörnsson
Ólafur Guðjón Haraldsson
Sigurður Már Eggertsson
Sigurður Sigurðsson
Sunna Dís Klemensdóttir
Viðar EInarsson
Þorgeir Ragnarsson
Þórður Karlsson
Þórey S. Þórisdóttir
Þráinn Guðbjörnsson
Þröstur Már Bjarnason