Jólaúthlutun Velferðarsjóðs Voga
Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna jólastyrkja úr Velferðarsjóði Voga. Umsóknir þurfa að berast fyrir 3. desember 2023. Umsækjendur þurfa að vera búsettir í Vogum og hafa þar lögheimili. Umsókn þarf að fylgja búsetuvottorð og staðgreiðsluskrá fyrir þann sem sækir um. Ef um hjón/sambúðarfólk er að ræða þá þurfa báðir aðilar að skila inn staðgreiðsluskrá. Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila á netfangið: [email protected].
Kvenfélagið Fjóla
Lionsklúbburinn Keilir
Kálfatjarnarkirkja