Sunnudagur 10. desember 2006 kl. 00:15
Jólatréð út í veður og vind

Jólatré Grindvíkinga við Landsbankann í Grindavík varð hálf rislítið í veðurofsanum í kvöld. Björgunarveitarmenn úr Þorbirni voru kallaðir til að bjarga trénu og var notast við stórvirka vinnuvél til að styðja við tréð svo það færi ekki út í veður og vind í orðsins fyllstu merkingu.
Mynd: Unnið að því að bjarga jólatrénu við Landsbankann í Grindavík í kvöld. Ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson