Jólatónlistin í hættu vegna verkfalls
– Tónlistarskólakennarar hittast reglulega og stappa í sig stálinu
Tónlistarnemendur eru farnir að finna verulega fyrir því að kennarar í Félagi tónlistarskólakennara, FT, hafa verið í verkfalli síðan 22. október. Hjá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar eru 28 tónlistarkennarar í verkfalli en 16 eru við störf en þeir kennarar eru í öðru stéttarfélagi.
Verkfall tónlistarskólakennara snertir við mörgum í Reykjanesbæ, enda fjölmargir sem leggja stund á tónlistarnám. Samningar milli viðsemjenda ganga illa og þegar tíðindamaður Víkurfrétta tók hús á tónlistarskólakennurum á þriðjudagsmorgun í síðustu viku var þungt hljóð í þeim, enda stál í stál hjá samninganefndum. Á meðan ekki semst verða áhrif verkfallsins alvarlegri með hverjum deginum. Nú þegar jólin nálgast þá getum við horft upp á það að jólatónlistin í Reykjanesbæ sé í hættu. Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sé óstarfhæf vegna verkfalls kennara. Því geti blásarar sveitarinnar ekki mætt á hina ýmsu viðburði nú í aðdraganda jóla á meðan verkfallið varir. Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hefur þó fengið undanþágu til að fara í sjónvarpsupptöku og einnig til að taka þátt í tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Óskað hefur verið eftir bjöllukórnum með sveitinni í ár og einnig hefur hann verið bókaður fyrir næsta ár.
Tónlistarskólakennarar sem Víkurfréttir hittu að máli segja það alls ekki auðvelt að standa í verkfalli þessa dagana og finnst lítið miða í samkomulagsátt hjá viðsemjendum. Þeim finnist mikið bera í milli enda vilja tónlistarskólakennarar njóta sömu kjara og grunnskólakennarar og segja muninn á milli þessara kennarastétta vera of mikinn í dag.
Tónlistarskólakennurum í Reykjanesbæ hefur frá því verkfallið hófst borist fjöldinn allur af stuðningsyfirlýsingum og baráttukveðjum frá einstaklingum, starfsmannahópum og félagasamtökum. Slíkur stuðningur eflir baráttuanda innan hópsins, segja þau sem standa í verkfallinu.
Síðan verkfall hófst hafa kennarar í FT við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar haldið hópinn og fundað reglulega. Á fundi sínum á dögunum fengu þeir óvænta heimsókn, þegar fulltrúar framhaldsskólakennara við Fjölbrautaskóla Suðurnesja bönkuðu upp á og færðu kennurum TR táknræna gjöf og fluttu þeim stuðnings- og baráttukveðjur félaga sinna í FS. Slíkt vinarþel er ómetanlegt og vilja kennarar í FT við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar koma á framfæri innilegu þakklæti til kennara við Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir stuðninginn.
Tónlistarskólakennarar í Reykjanesbæ tóku við táknrænum stuðningi frá kennurum í Fjölbrautaskóla Suðurnesjum.