Jólasnjórinn ekki væntanlegur í þessari viku
- Rigning næstu daga
Ekkert lát verður á rigningunni næstu daga samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Í dag, miðvikudag, og fram á laugardag mun rigna. Á fimmtudag er því spáð að vindur verði 18 metrar á sekúndu og á föstudaginn 20 metrar. Hiti verður á bilinu 2 til 8 gráður.