Jólalukka Víkurfrétta í 22 verslunum - 6 þúsund vinningar
60“ LG UHD sjónvarpstæki, 100 þúsund kr. gjafabréf í Nettó og hótelgistingar og gjafabréf í verslunum meðal þúsunda vinninga. Hefst laugardaginn 5. desember.
Tuttugu og tvær verslanir og þjónustuaðilar á Suðurnesjum eru með í Jólalukku Víkurfrétta 2020 en þetta er í nítjánda skipti sem Víkurfréttir standa fyrir þessum vinsæla skafmiðaleik í samvinnu við verslanir og þjónustuaðila í desember.
Nærri sex þúsund vinningar eru í Jólalukkunni en auk þess verða glæsilegir vinningar dregnir út þrisvar sinnum í desember, m.a. þrjú 60“ LG UHD sjónvörp, tvö 100 þúsund kr. gjafabréf í Nettó, átján 15 þúsund króna gjafabréf í Nettó og hótelgistingar frá Íslandshótelum og ION City hótelinu í Reykjavík.
Jólalukkan hefst laugardaginn 5. desember en í þessum vinsæla jólaleik sem gengur út á það að fyrir 6.000 kr. viðskipti fæst afhentur skafmiði í tuttugu og tveimur verslunum á Suðurnesjum. Vinningar eru frá yfir fimmtíu fyrirtækjum og aðilum á Suðurnesjum.
Útdrættir verða þrisvar í desember og er fólk hvatt til að fara með skafmiða með engum vinningi í kassa sem eru í verslunum Nettó í Reykjanesbæ og Grindavík. Nöfn vinningshafa verða birt í Víkur-fréttum og á vf.is.