Jólalukka VF í tuttugasta og fyrsta sinn í 20 verslunum - 5600 vinningar
Tuttugu verslanir og þjónustuaðilar á Suðurnesjum eru með í Jólalukku Víkurfrétta 2022 sem hefst 1. desember en þetta er í tuttuguasta og fyrsta skipti sem Víkurfréttir standa fyrir þessum vinsæla skafmiðaleik í samvinnu við verslanir og þjónustuaðila í desember.
Fimm þúsund og sexhundruð vinningar eru í Jólalukkunni en auk þess verða glæsilegir vinningar dregnir út þrisvar sinnum í desember, m.a. tvö 65“ LG UHD sjónvörp, tvö 100 þúsund króna gjafabréf, þrjú 50 þúsund og tutugu 15 þúsund króna gjafabréf í Nettó appinu. Þá verður dreginn út hótelgisting og kvöldverður fyrir tvo á Dimond Suites á Hótel Keflavík og hótelgisting og morgunverður á Courtyard by Marriott í Reykjanesbæ. Þá má nefnda fleiri veglega vinninga, m.a. pizzaofn frá Nettó, háþrýstidæla frá Múrbúðinni og jólakonfekt frá Nóa/Síríus og Nettó.
Margir veglegir vinningar eru á skafmiðum, m.a. gjafabréf frá Bláa lóninu og Retreat lúxus spa, gjafabréf frá fjölda veitingastaða í Reykjanesbæ, vinsælustu jólabækurnar í ár, jólamatur, fimmtíu átta þúsund króna gjafabréf frá tuttugu verslunum og margt, margt fleira. Vinningar eru frá yfir fimmtíu fyrirtækjum og aðilum á Suðurnesjum.
Jólalukkan hefst 1. desember en í þessum vinsæla jólaleik fá viðskiptavinir tuttugu verslana og fyrirtækja sem bjóða Jólalukku, skafmiða þegar verslað er fyrir 7.000 kr. Listi yfir þá aðila sem bjóða Jólalukku VF má sjá í auglýsingu í blaði vikunnar.
Útdrættir verða þrisvar í desember og er fólk hvatt til að fara með skafmiða með engum vinningi í kassa sem eru í verslunum Nettó í Reykjanesbæ og Grindavík. Nöfn vinningshafa verða birt í Víkur-fréttum og á vf.is.