Jólagjöf Reykjanesbæjar í ár sú sama og í fyrra
— tekist á um gjöfina fyrir síðustu jól
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt tillögu að jólagjöf til starfsmanna 2021 samkvæmt minnisblaði sem lagt var fyrir bæjarráð. Lagt til að í ár verði jólagjöfin sú sama og síðasta ár. Bæjarráð samþykkti tillöguna og viðbótar fjárveitingu upp á tíu milljónir króna vegna jólagjafa.
Jólagjöf Reykjanesbæjar til starfsmanna varð tilefni bókanna á síðasta ári þar sem minnihlutinn í bæjarstjórn lagðist alfarið á móti hækkun jólagjafar til starfsfólks og vildi að velferðarsvið fengi hækkunina til ráðstöfunar.
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ leggjast alfarið á móti 20% hækkun jólagjafar til starfsfólks bæjarins eins og meirihlutinn samþykkti í bæjarráði.
Í ljósi þess að 1 af hverjum rúmlega 4 einstaklingum á atvinnumarkaði í sveitarfélaginu eru án atvinnu og fjárhagslegra erfiðleika í heild hjá sveitarfélaginu, teljum við þessa hækkun taktlausa.
Jólagjöfin er í formi gjafabréfs til að nýta hjá fyrirtækjum og þjónustuaðilum í „Betri bæ“ hér í Reykjanesbæ. Við leggjum til að þessi 20% hækkun á gjafabréfum renni til þeirra sem eiga í erfiðleikum með að ná endum saman. Velferðarsviðið fái þessa upphæð til að úthluta til þeirra sem mest þurfa á gjafabréfinu að halda,“ sagði í bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokkisns í fytta sem Margrét Sanders, Baldur Guðmundsson og Anna Sigríður Jóhannesdóttir skrifuðu undir.
„Við leggjum til að sú áætlaða 20% hækkun á jólagjöfum til starfsmanna í formi gjafabréfa renni til þeirra sem eiga í erfiðleikum með að ná endum saman. Velferðarsviðið fái þessa upphæð til að úthluta til þeirra sem mest þurfa á gjafabréfinu að halda,“ sagði jafnframt í tillögu frá þeim.
Margrét Þórarinsdóttir bæjarfulltrúi Miðflokksins bókaði:
„Bæjarfulltrúi Miðflokksins styður þessa framkomnu tillögu. Með henni er verið að koma til móts við fjölda fólks sem reiða sig á fjárhagsaðstoð bæjararins. Þessi tillaga er mikið réttlætismál fyrir það fólk.“
Tillagan er felld með sex atkvæðum meirihlutans gegn finn atkvæðum minnihluta.
„Meirihlutinn hafnar framkominni tillögu enda er um að ræða 5% hækkun á heildarvirði jólagjafar til starfsfólks. Starfsfólk bæjarins hefur unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður og alls ekki boðlegt að tengja jólagjafir til starfsmanna við stöðu velferðarmála. Lögð hefur verið til veruleg hækkun til málaflokksins og væri frekari stuðningur við velferðarmál sjálfstæð ákvörðun. Það er sorglegt að verða vitni að lýðskrumi sem þessu og bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks til háborinnar skammar,“ sagði í bókun meirihlutans í bæjarstjórn við þetta tækifæri.