Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Miðvikudagur 15. maí 2002 kl. 21:49

Jóhann Geirdal nefndakóngur Reykjanesbæjar

Jóhann Geirdal, Samfylkingunni, er nefndakóngur Reykjanesbæjar á kjörtímabilinu sem er að ljúka. Hann situr í flestum nefndum ásamt þeim Kjartani Má Kjartanssyni, Jónínu A. Sanders og Björk Guðjónsdóttur. Jóhann Geirdal hefur setið 449 fundi á kjörtímabilinu.Alls hafa 127 aðilar þegið nefndarlaun hjá Reykjanesbæ á kjörtímabilinu.
Þeir einstaklingar sem hafa setið flesta fundi eru:
Jóhann Geirdal 449 fundi
Kjartan Már Kjartansson 415 fundi
Jónína A. Sanders 381 fund
Björk Guðjónsdóttir 374 fundi

Þetta kemur fram í svari Hjartar Zakaríassonar bæjarritara til fréttastjóra Víkurfrétta á vef Reykjanesbæjar.

Spurt var:

1. Hvað hafa margir þegið nefndalaun hjá Reykjanesbæ á þessu kjörtímabili?
2. Hverjir sitja í flestum nefndum?

3. Hvaða einstaklingar hafa hæst nefndalaun?

4. Hvað hafa þeir setið marga nefndafundi?

Sömu spurningar eru lagðar fyrir hin sveitarfélögin á Suðurnesjum.

Hjörtur baðst undan því að svara spurningunni um það hver hefði hæst nefndalaun.

Sömu spurningar voru sendar á skrifstofur allra sveitarfélaga á Suðurnesjum en engin viðbrögð hafa borist frá hinum fjórum sveitarfélögunum á Suðurnesjum.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024