Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Jóhann Friðrik ráðinn framkvæmdastjóri Keilis
Laugardagur 20. apríl 2019 kl. 13:15

Jóhann Friðrik ráðinn framkvæmdastjóri Keilis

Jóhann Friðrik Friðriksson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, í stað Hjálmars Árnasonar sem lætur af störfum í sumar eftir 12 ára starf.

Jóhann, sem nú starfar sem fagstjóri sálfélagslegra þátta hjá Vinnueftirlitinu, lauk BA prófi í heilbrigðisvísindum og meistaraprófi í lýðheilsuvísindum frá Arnold School of Public Health við University of South Carolina.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Jóhann starfaði áður sem stjórnandi klínískra og akademískra rannsóknateyma og sem vísindamaður við taugalæknadeild og lýðheilsudeild sama skóla.

Hann hefur einnig starfað sem verkefnastjóri við vísindastofnanir í Bandaríkjunum og unnið að sjálfstæðum ráðgjafaverkefnum þar og hér heima.

Jóhann hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra á sínu fagsviði.

Hann er búsettur í Reykjanesbæ ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann gegnir m.a. embætti forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn