Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Jóhann Friðrik leiðir Framsókn í Reykjanesbæ
Föstudagur 23. febrúar 2018 kl. 12:54

Jóhann Friðrik leiðir Framsókn í Reykjanesbæ

- Ellefu karlar og ellefu konur á framboðslistanum

Ellefu karlar og ellefu konur skipa framboðslista Framsóknar í Reykjanesbæ sem samþykktur var á félagsfundi í gærkvöldi. Jóhann Friðrik Friðriksson leiðir listann en Díana Hilmarsdóttir skipar annað sæti. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir er í þriðja sæti.
 
Listi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 26. maí 2018 er eftirfarandi:
 
1. Jóhann Friðrik Friðriksson, lýðheilsufræðingur

2. Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar

3. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, kennsluráðgjafi

4. Trausti Arngrímsson, viðskiptafræðingur

5. Bjarni Páll Tryggvason, flugumferðarstjóri

6. Eva Stefánsdóttir, viðskiptafræðingur

7. Sigurður Guðjónsson, löggiltur bifreiðasali

8. Halldór Ármannsson, útgerðarmaður

9. Magnea Herborg Björnsdóttir, leikskólakennari

10. Jóhanna María Kristinsdóttir, söngkona

11. Andri Fannar Freysson, tölvunarfræðingur

12. Aðalheiður Halldórsdóttir, grunnskólakennari

13. Guðmundur Stefán Gunnarsson, ráðgjafi á velferðarsviði og júdókappi

14. Drífa Sigfúsdóttir, fyrrv. forseti bæjarstjórnar

15. Róbert Jóhann Guðmundsson, málarameistari

16. Andrea Ásgrímsdóttir, PGA golfkennari

17. Hólmfríður Guðmundsdóttir, hússtjórnarkennari

18. Freyr Sverrisson, knattspyrnuþjálfari

19. Ólafía Guðrún Lóa Bragadóttir, tollvörður

20. Oddný Mattadóttir, húsmóðir

21. Ingvi Þór Hákonarson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður

22. Kristinn Þór Jakobsson, bæjarfulltrúi og viðskiptafræðingur
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024