Jarðvélar ehf. til gjaldþrotaskipta
Verktakafyrirtækið Jarðvélar ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 7. febrúar síðastliðnum. Skiptastjóri er Lárentsínus Kristjánsson hrl. og verður skiptafundur haldinn 30. apríl nk.
Jarðvélar unnu að tvöföldun Reykjanesbrautar en fyrirtækið sagði sig frá verkinu vegna rekstrarerfiðleika. TIlraunir Vegagerðarinnar til að semja við undirvertaka um áframhald verksins tókust ekki. Því þarf að bjóða verkið út að nýju og tefst þar um 5 - 6 mánuði af þeim sökum. Því átti að ljúka um mitt næsta sumar.
VF-mynd/Þorgils: Tæki fjarlægð af verkstað eftir að lánadrottnum brast þolinmæðin.