Jarðskjálftinn: Engin útköll á Suðurnesjum
Engin útköll hafa verið í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum eftir stóra skjálftann í Ölfusinu í dag. Hans varð víða vart á Suðurnesjum, m.a. á skrifstofum Víkurfrétta í Njarðvík og í efri hverfum Reykjanesbæjar. Þá hristust ljósakrónur og annað lauslegt í Grindavík, en eins og áður sagði hefur ekki verið tilkynnt um neitt tjón.