Jarðskjálftahrina við Keili: Sá stærsti til þessa
Í dag, laugardag, kl 15:32 varð skjálfti af stærð 4,2 um 1,1 km SSV af Keili.
Hrina hófst SSV af Keili þann 27. september og hafa yfir 3000 skjálftar mælst á svæðinu, þar af átta yfir 3,0 að stærð. Stærsti skjálftinn mældist 4,2 í dag. Skjálftarnir finnast víða á Reykjanesskaganum og á suðvesturhorninu.