Bygg
Bygg

Fréttir

Jákvæð rekstrarniðurstaða hjá Reykjanesbæ
Frá fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Föstudagur 28. apríl 2023 kl. 06:05

Jákvæð rekstrarniðurstaða hjá Reykjanesbæ

Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs Reykjanesbæjar 2022 eftir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 476 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi a- og b-hluta eftir afskriftir, fjármagnsliði og tekjuskatt nam  1.084 milljónum. Þetta kom fram á bæjarstjórnarfundi 18. apríl en þá fór fram fyrri umræða um ársreikning sveitarfélagsins en hann er enn í endurskoðun og tölur gætu breyst.

„Við eigum að vera stolt af þessari stöðu sem Reykjanesbær er komin í. Við höfum tekið risaskref á síðustu árum. Það er ánægjulegt að sjá margar tölur í þessum ársreikningi og við getum öll verið stolt af honum,“ sagði Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs. „Þetta er heilbrigður ársreikningur. Það er frábært hvað tekjur hafa aukist mikið og hvað við erum heppin eða óheppin að fá svona mikið úr Jöfnunarsjóði. Ástæðan fyrir því hvað við fáum svona mikið úr Jöfnunarsjóði er slæm en við förum betur yfir þetta í seinni umræðu um ársreikningin,“ sagði Margrét Sanders, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Síðari umræða um ársreikninginn 2022 fer fram á bæjarstjórnarfundi 16. maí.

Bílakjarninn
Bílakjarninn