HSS
HSS

Fréttir

Jákvæð afkoma Grindavíkurbæjar
Föstudagur 22. apríl 2005 kl. 10:36

Jákvæð afkoma Grindavíkurbæjar

Í ársreikningi Grindavíkurbæjar fyrir árið 2004, sem lagður var fram til fyrstu umræðu á bæjarstjórnarfundi á dögunum, kemur fram m.a. að tekjur sveitarsjóðs eru mun meiri en gert var ráð fyrir í áætlun einnig er rekstrarniðurstaða mun jákvæðari. Þetta kemur fram á heimasíðu Grindavíkurbæjar.
 
Ársreikningur Grindavíkur er í annars vegar A. hluta og A+B. hluta. Í A hluta eru stofnanir sem reknar eru af skatttekjum bæjarins t.d. leikskóli o.s.fr.Í A+B hluta eru stofnanir sem reknar eru af tekjum t.d. höfnin, vatnsveitan o.s.fr.
 
Í rekstrarniðurstöðu rekstarreiknings kemur fram að að A hluti reikningsskila er 60 miljónum jákvæðari en áætlanir gerðu ráð fyrir, og í A+B hluta er um að ræða 65 milljóna króna jákvæðari.
Skýrist þessi munur m.a. í því að tekjuliðir eru 21 miljón króna hærri vegna aukina tekna, vöru og þjónustukaup eru 17 milljónum króna lægri en áætlun gerði ráð fyrir.
Fjármagnsliðir eru 29 milljónum krónum hærri sem skýrist meðal annars af gengishagnaði, þá voru umframafskriftir um 3 milljónir.

Vefur Grindavíkurbæjar

Bílakjarninn
Bílakjarninn