Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Jafnaðarmenn leiði tiltektina í Reykjanesbæ
Ráðhús Reykjanesbæjar.
Mánudagur 10. nóvember 2014 kl. 09:30

Jafnaðarmenn leiði tiltektina í Reykjanesbæ

- segir í ályktun frá aðalfundi kjördæmaráðs Samfylkingarinnar.

Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmis mótmælti harðlega forgangsröðun í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar hægri flokkanna þar sem gengið er harkalega á hlut hinna efnaminni og forgangsraðað í þágu þeirra efnameiri. Fundurinn var haldinn 8. nóvember í Sveitarfélaginu Garði.

Óráðsía og óraunhæfar áætlanir
Kjördæmisráð telur afar mikilvægt að jafnaðarmenn leiði tiltektina í Reykjanesbæ eftir áratuga óstjórn Sjálfstæðismanna og heitir þeim stuðningi við það krefjandi verkefni. „Stjórn Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ hefur einkennst af óráðsíu, óraunhæfum áætlunum og stöðugri eignasölu. Staða Reykjanesbæjar er alvarleg og miklu máli skiptir að áherslur jafnaðarmanna móti uppbyggingarstarfið. Með því verði bænum loks stýrt eftir raunhæfri og skýrri sýn sem grundvölluð er á ábyrgri fjármálastjórn og vörn grunnþjónustu sem er íbúum öllum til heilla,“ segir í ályktun frá fundinum.

Fordæmir aðför gegn framhaldsskólum
Þá sé metnaðarleysi í byggðamálum sláandi og niðurskurður í mikilvægum málaflokkum veiki byggðir í Suðurkjördæmi eins og annars staðar á landinu. „Kjördæmisráðið fordæmir þá aðför sem nú stendur yfir gegn framhaldsskólum landsins með því að meina fólki 25 ára og eldri aðgangi að bóknámi. Þær hugmyndir eru forkastanlegar og munu hafa uppsagnir starfsfólks í för með sér en einnig fátæklegra námsframboð víða um land..“ Smærri skólar á landsbyggðinni verði verst úti og þau byggðalög sem treyst hafi á framhaldsskólana til að mæta menntunarþörf íbúa. Fullorðnum nemendum sé bent á mun dýrara námsframboð símenntunarstöðva og einkaskóla en þær námsleiðir fái hins vegar ekki fjármagn til að taka við fleiri nemendum.

Lækka beina greiðsluþátttöku
Þá skorar kjördæmisráð á stjórnvöld að lækka beina greiðsluþátttöku einstaklinga í heilbrigðiskerfinu sem hækkað hafi mikið á árinu. „Sá kostnaður eykur misskiptingu í landinu og hefur áhrif á hvort fólk leiti sér lækninga, kaupi nauðsynleg lyf eða hjálpartæki. Heilbrigðiskerfið á að fjármagna úr sameiginlegum sjóðum og tryggja þarf að allir hafi jafnan aðgang að bestu fáanlegri heilbrigðisþjónustu. Til þess þarf m.a. að hefjast nú þegar handa við byggingu á nýjum Landspítala.“

Einnig er skorað á stjórnvöld að undirbúa átak í byggingu hjúkrunarrýma aldraðra, til að mæta brýnni og vaxandi þörf fyrir fleiri rými á komandi árum. Með styttingu þess tíma sem heimili greiðslu atvinnuleysisbóta, niðurskurðar á fjármagni til starfsendurhæfingar og framlags til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða sé ráðist að kjörum þeirra sem einna veikast standa. „Fólk sem glímt hefur við langtímaatvinnuleysi eða býr við örorku verður verst úti. Sveitarfélög bera mikinn kostnað vegna þessara aðgerða stjórnvalda og lífeyrissjóðir knúnir til að skerða réttindi. Við slíkt verður ekki unað,“ segir ennfremur í ályktuninni.

Ljúka viðræðum aðild að ESB
Kjördæmisráðið skorar á stjórnarflokkana að ljúka viðræðum um aðild að Evrópusambandinu og leggja fullgerðan samning í dóm þjóðarinnar. Möguleg aðild að sambandinu með upptöku evru í fyllingu tímans sé án efa mesta hagsmunamál þjóðarinnar um áratugaskeið og vítavert að loka greiðustu leiðinni út úr vítahring hárra vaxta og verðtryggingar án þess að ljúka viðræðunum og gefa þjóðinni kost á að kjósa um hann. Bent er á sögulegar vanefndir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum og þá staðreynd að rúmu ári eftir að hægri flokkarnir tóku við völdum hafi Íbúðalánasjóður hætt við að bjóða upp á óverðtryggð lán. „Lýðskrum Framsóknarflokksins um afnám verðtryggingar og lækkun skulda upp á hundruð milljarða stendur eftir sem vanefndir án fordæma.“

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024