Ítrekað ráðist á skessuna í hellinum
Skessan í hellinum við smábátahöfnina í Gróf hefur ítrekað mátt þola skemmdarverk af ýmsum toga þar sem tennur hennar hafa verið brotnar og aðrar skemmdir unnar. Fyrir Ljósanótt var enn og aftur farið inn til skessunnar og gengið í skrokk á henni, eins og meðfylgjandi myndir sýna.
Starfsmönnum Reykjaneshafnar tókst þó að laga skessuna þannig að hún gæti tekið á móti fjölmörgum gestum á Ljósanótt, enda hafnarstarfsmennirnir vanir lýtalækningum, beinbrotum og tannviðgerðum, svo vitnað sé í umræðu um skemmdarverkin á fésbókinni.
Til vinstri má sjá hvar bráðabirgðaviðgerð hefur farið fram en hægra megin má sjá slæmt hálsbrot á skessunni.