Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íslenska alþjóðasveitin á Ásbrú hlýtur alþjóðlega vottun
Sunnudagur 13. september 2009 kl. 14:41

Íslenska alþjóðasveitin á Ásbrú hlýtur alþjóðlega vottun

Íslenska alþjóðasveitin hlaut í gær formlega vottun sem fullgild alþjóðleg rústabjörgunarsveit frá INSARAG, sem eru samtök alþjóðlegra rústabjörgunarsveita sem starfa undir hatti Sameinuðu þjóðanna. 10 manna útektarteymi frá INSARAG hefur undanfarna daga verið með sveitinni á strangri æfingu á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Fjórir meðlimir frá Björgunarsveitinni Suðurnes eru meðlimir í Íslensku alþjóðasveitinni, en alþjóðasveitin hefur aðsetur á Ásbrú í Reykjanesbæ.
 
Umsögnin sem sveitin hlaut frá úttektarteyminu að æfingu lokinni var afar góð. Þar sagði m.a. að sveitin hafi sýnt mikla fagmennsku í öllum verkum sem leiddi til góðrar frammistöðu. Einnig var tekið eftir afar öguðum vinnubrögðum og góðum anda innan hennar.
 
Undirbúningur Íslensku alþjóðasveitarinnar fyrir þessa úttekt hefur verið langur og strangur. Sveitin hefur æft vel en auk þess liggur mikil vinna að baki þess að búðnaður sé réttur og í lagi, bólusetningar meðlima í gildi og að pappírsvinna sé í lagi svo fátt eitt sé nefnt. Í sveitinni eru björgunarmenn sem hafa sérhæft sig í rústabjörgun, læknar, bráðatæknar, sérfræðingar í eiturefnum, fyrstuhjálpar- og fjarskiptamenn. Búnaður sveitarinnar vegur allt að 14 tonnum en umfang hans fer eftir þeim verkefnum sem sveitin er að fara í hverju sinni. Gert er ráð fyrir að sveitin geti starfað án utankomandi aðstoðar í 10 daga.

Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar var stofnuð árið 1999 með samkomulagi milli Slysavarnafélagsins Landsbjargar, utanríkisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins. Alþjóðasveitin er á viðbragðslista Íslensku friðargæslunnar. Sveitin fór í sitt fyrsta útkall árið 1999 þegar að hún fór til Tyrklands í kjölfar jarðskjálftanna sem urðu þar en þá létust meira en 18 þúsund manns. Árið 2003 fór sveitin til Alsír í kjölfar jarðskjálfta og í byrjun árs 2004 var farið til Marokkó. Auk þess fóru fjórir félagar úr ÍA í sjúkraflug til Tælands í byrjun árs 2005 eftir flóðin í Indónesíu. Sveitin var sett í viðbragðsstöðu  eftir hryðjuverkaárásirnar í  Bandaríkjunum og fellibylinn Katrínu og einnig þegar jarðskjálftar urðu í Pakistan 2006 og í Kína 2008.

Sveitin hefur aðsetur í húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ og er grunnbúnaður hennar geymdur þar. Þær einingar sem standa að sveitinni í dag eru Björgunarsveitin Ársæll, Hjálparsveit skáta Kópavogi, Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Björgunarsveitin Suðurnes. Einnig koma að henni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Landspítalinn.

Fyrirkomulag starfsemi sveitarinnar gerir það að verkum að hægt er að bjóða uppá fjölbreytta aðstoð á hamfarasvæðum erlendis. Búðirnar, fjarskiptin, flutningur og stjórnun sveitarinnar er með sama hætti  hvort sem um er að ræða rústabjörgun, vatnshreinsun, uppsetningu á flóttamannabúðum, sjúkrahjálp, flóð eða önnur verkefni sem íslensk stjórnvöld vilja leggja til lið hverju sinni.

Myndin er af Íslensku alþjóðasveitinni eftir að æfingunni lauk í gær.  

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024