Fréttir

Íslensk kjötsúpa í fjöldahálparstöðvum í dag
Sunnudagur 19. október 2014 kl. 12:36

Íslensk kjötsúpa í fjöldahálparstöðvum í dag

– Landsæfing Rauða krossins – Eldað fyrir Ísland

Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir landsæfingu í dag, sunnudaginn 19. október, og býður þjóðinni jafnframt í mat. Alls verða 48 fjöldahjálparstöðvar opnaðar um allt land þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina, rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að ræða.

Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla. Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu. Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól.

Klúbbur matreiðslumeistara leggur Rauða krossinum lið á landsæfingunni með því að reiða fram þjóðarréttinn, íslenska kjötsúpu.

Rauði krossinn á Íslandi vonast til að sjá sem flesta á landsæfingunni. Það er hagur okkar allra.

Þær fjöldahjálpastöðvar sem verða opnar á Suðurnesjum eru Sandgerðisskóli, Hópskóli Grindavík og Holtaskóli Reykjanesbæ stöðvarnar verða opnar frá kl. 11-15.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024