Bygg
Bygg

Fréttir

Íslendingur í heimabyggð
Þriðjudagur 14. desember 2004 kl. 14:23

Íslendingur í heimabyggð

Íslendingur snéri til heimabæjar síns í dag ef svo má að orði komast. Víkingaskipið Íslendingur var notaður við tökur á Bjólfskviðu í Jökulsárlóni síðla sumars en honum var komið fyrir í húsi sínu nú í morgun. Gunnar Marel, skipasmiður Íslendings, sá um að koma honum fyrir en það er mikið verk enda Íslendingur engin smásmíði. „Það tekur yfirleitt svona einn dag að koma honum fyrir í húsinu,“ segir Gunnar. Skipið var mikið notað við tökur á myndinni bæði á jökulsárlóni og út við Dyrhólaey að sögn Gunnars. „Þetta var mjög strangur túr.

Við vorum í einn og hálfan mánuð að koma Íslending þangað og aftur tilbaka með undirbúningi og öllu,“ segir Gunnar. „Við sváfum ekki heima hjá okkur í rúman mánuð og unnum nóttum saman svo að Íslendingur væri á sínum stað fyrir tökur á myndinni,“ segir Gunnar og bætir því við að skipið sé víðförult en það hefur farið bæði yfir og undir brýr á vagni. Íslendingur er orðinn 10 ára gamall en á víkingatímunum voru skipin byggð fyrir 10 ára notkun en það taldist ekki hagkvæmt að halda þeim við. „Það hefur ekkert verið neitt viðhald á honum hingað til en það hefst nú, það þarf nefnilega að skipta um ýmislegt til að gera hann sjófæran aftur. En að öðru leiti er hann í mjög góðu standi.“

Samkvæmt Gunnari er framtíðin björt fyrir Íslending en skipið gæti lifað í heilu lagi næstu árhundruðin jafnvel þúsundin. „Íslendingur var byggður eftir skipi sem er á safni í Noregi. Það skip er í góðu lagi en það var byggt árið 870, svo að við ættum að geta haldið honum í góðu lagi.“ Samkvæmt Gunnari er það klárt mál að ef þær hugmyndir sem uppi eru um Íslending gangi upp þá sé skipið í góðum málum.

Myndin: Íslendingur færður inn í hús VF-myndin: Atli Már Gylfason

Bílakjarninn
Bílakjarninn