Íslandssími býður ADSL þjónustu í Reykjanesbæ

Sala og markaðssetning á ADSL tengingum til heimila og fyrirtækja í Reykjanesbæ hefst strax og mega fyrstu notendur vænta þess að verða tengdir innan viku. Kerfi Íslandssíma mun ná til allra þéttbýliskjarna í bænum – Keflavíkur og Ytri- og Innri Njarðvíkur. Nauðsynlegur undirbúningur er hafinn og hefst uppsetning á tækjabúnaði innan skamms. Íbúar og fyrirtæki í Innri-Njarðvíkum og Fitjum, sem ekki hafa átt kost á ADSL tengingum til þessa, geta tengst kerfi íslandssíma frá byrjun októbermánaðar.
Íslandssími býður heimilum í Reykjanesbæ annars vegar ADSL II sem er 512 Kb/s tenging. Niðurhal innanlands er gjaldfrjálst og veittur er 20% afsláttur af erlendu niðurhaldi um kvöld og helgar af ADSL II. Hins vegar er heimilum boðin 256 Kb/s ADSL tenging. Auk ADSL þjónustu veitir Íslandssími heimilum hefðbundna símaþjónustu og farsímaþjónustu á eigin neti á Reykjanesi. Viðskiptavinum sem færa tvo þætti þjónustunnar til Íslandssíma býðst því 10% afsláttur af allri notkun, nema hringinga í 900 númer, og 15% afsláttur séu þeir með síma, farsíma og ADSL tengingu hjá Íslandssíma. Þessi afsláttur er til viðbótar öðrum sparnaðarleiðum og sérkjörum sem boðið er upp á. Fyrirtækjum bjóðast margvíslegir möguleikar á gagnaflutningum og annarri fjarskiptaþjónustu og augljóst hagræði að vera með alla fjarskiptaþjónustu á einum stað.
Íslandssími hefur boðið ADSL þjónustu á heimilismarkaði frá því í nóvember 2001. Uppbygging kerfisins hófst snemma árs 2001 og voru fyrstu fyrirtækin tengd inn á kerfið um svipað leiti. Fyrirtækið veitir í dag DSL þjónustu, þ.m.t. ADSL, á eigin kerfi um nær allt höfuðborgarsvæðið, Akureyri og innan skamms tíma Reykjanesbæ.