Isavia tapaði 2,1 milljarði króna vegna WOW air
Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2019 var neikvæð um 942 milljónir króna samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 2.186 milljónir árið á undan. Stærsta hlutann af þessum viðsnúningi má rekja til niðurfærslu á kröfu vegna WOW air sem nam 2.081 milljón króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.
Rekstrartekjur námu 18.162 milljónum króna sem er um 854 milljóna króna samdráttur samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Rekstrarkostnaður stóð í stað milli tímabila. Heildarafkoma tímabilsins var neikvæð um 2.524 milljón króna samanborið við 1.571 milljón króna jákvæða heildarafkomu á sama tímabili á síðasta ári.
Þessa breytingu milli ára má einkum rekja til aukinnar niðurfærslu viðskiptakrafna upp á 2.054 milljónir króna, neikvæðra gengisáhrifa vegna erlendra lána upp á 1.989 milljónir króna og minnkandi tekna upp á 854 milljónir króna.
Þrátt fyrir fækkun ferðamanna, einkum skiptifarþega, varð ekki breyting á mestu álagstímunum á Keflavíkurflugvelli. Þetta setti félaginu þröngar skorður varðandi niðurskurð. Þá þótti félaginu ekki fært annað en að framkvæma reikningshaldslega niðurfærslu á ríflega tveggja milljarða kröfu vegna WOW air.
„Afkoma Isavia ber þess merki að WOW air varð gjaldþrota í lok mars síðastliðnum,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Ferðamönnum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fyrstu sex mánuði þessa árs fækkaði um hátt í 900 þúsund, eða 20,3% samanborið við sama tímabil í fyrra.“
Við þetta bætast síðan deilur vegna kyrrsetningar á þotu sem WOW air hafði verið með í rekstri. „Ákvörðun Héraðsdóms Reykjaness um að fresta ekki réttaráhrifum úrskurðar um afhendingu þotunnar kom í veg fyrir að kyrrsetningarmálið færi eðlilega leið í dómskerfinu og gerði það að verkum að vélinni umræddu hefur nú verið flogið af landi brott. Við teljum þá ákvörðun héraðsdómara ámælisverða, en erum að leita leiða til að koma málinu á ný á æðra dómstig“, segir Sveinbjörn. Áður hafði Landsréttur úrskurðað félaginu í vil en sá úrskurður var ómerktur af lagatæknilegum ástæðum. „Þó svo að úrskurður Landsréttar hafi verið tæknilega ómerktur þá stendur eftir skoðun dómstólsins,“ segir Sveinbjörn.
Rekstrarspá félagsins gerir ráð fyrir að heildarafkoma félagsins fyrir árið í heild verði í járnum.
Lykiltölur úr hálfsársuppgjöri 2019
Tekjur: 18.162 milljónir króna
Rekstrartap: - 942 milljónir króna
Heildarafkoma eftir skatta: - 2.524 milljón króna
Handbært fé: 4.579 milljónir króna
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum: 1.874 milljónir króna
Eigið fé í lok tímabils: 32.744 milljónir króna
Eiginfjárhlutfall: 41,6%
Á vef Isavia má nálgast uppgjörið í heild sinni.