Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

ISAVIA svarar gagnrýni Vigdísar Hauksdóttur
Miklar framkvæmdir og breytingar hafa átt sér stað í flugstöð Leifs Eiríkssonar að undanförnu.
Föstudagur 24. júlí 2015 kl. 12:24

ISAVIA svarar gagnrýni Vigdísar Hauksdóttur

Vigdís Hauksdóttir alþingismaður og formaður fjárlaganefndar Alþingis deildi á Facebook síðu sinni, nýlega,  grein af bloggsíðunni Fararheill.is þar sem fram kom mikil og hörð gagnrýni á stjórnendur ISAVA. Þá gagnrýndi Vigdís sjálf stjórnendur ISAVIA og forgangsröðun þeirra, sem hún sagði snúast mest að því að fegra verslunarsvæðið en ekki um að stækka flugstöðina til að þjóna sem best ferðamönnum. 

ISAVIA hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem fjallað er um gagnrýni Vigdísar. Segir svo í yfirlýsingunni:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Vigdís Hauksdóttir alþingismaður og formaður fjárlaganefndar Alþingis deildi á Facebook síðu sinni,  grein af bloggsíðunni Fararheill.is og dró af henni ýmsar ályktanir um Isavia. Margar rangfærslur eru í grein Fararheilla sem virðist byggja á annað hvort röngum upplýsingum eða getgátum. Álagið hefur verið mikið undanfarið og að sjálfsögðu getur það bitnað á þjónustu. Starfsfólk Isavia fagnar uppbyggilegri gagnrýni og ábendingum en órökstuddum greinum byggðum á röngum forsendum eða getgátum er rétt að svara. Hér að neðan er farið yfir helstu staðreyndir málsins.

Tekjur af verslun nauðsynlegar til sjálfbærrar uppbyggingar

Breytingarnar sem gerðar voru á verslunar- og veitingasvæðinu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eru hluti af stærri framkvæmd. Hún fólst í því að stækka öryggisleitarsvæðið umtalsvert, bæta flæði um verslunar- og veitingasvæðið og endurskipuleggja það. Þá voru samningar við rekstraraðila útrunnir og ákveðið að ráðast í valferli um rekstur verslana og veitingastaða. Í valferlinu var meðal annars lagt upp úr því að Isavia fengi sem mestar tekjur af verslunar- og veitingasvæðinu, enda eru þær tekjur nýttar til sjálfbærrar uppbyggingar flugvallarins. Þessar tekur eru því forsenda þess að hægt sé að byggja upp flugvöllinn í takt við farþegafjölgun.

Álagstímar á öllum flugvöllum

Allir flugvellir hafa sína álagstíma og iðulega eru lengri raðir á álagstímum og fáar flugstöðvar, ef nokkrar, eru byggðar miðað við mestu álagsklukkutíma sólarhringsins og mestu álagsdaga ársins. Bið í öryggisleit og innritun er því ekki eitthvað sem er óeðlilegt á þessum mestu álagstímum. Isavia fylgist með biðröðum og leitast á öllum tímum við að minnka biðtíma farþega þar sem því verður við komið. Samtals tveggja klukkustunda biðraðir, eins og hermt er í greininni, er hins vegar eitthvað sem við höfum aldrei mælt hjá okkur. Þegar ástandið var sem verst í byrjun júlí á þessu ári taldist okkur til að samtals biðraðir í innritun og öryggisleit hafi mest verið um það bil 90 mínútur. Þetta var þegar verið var að klára uppsetningu á öryggisleitarlínum sem hafði tafist vegna vandamála hjá framleiðanda. Eftir þessa tvo-þrjá daga í júlí þar sem biðraðir voru lengstar hefur heildarbiðtími langflestra farþega verið undir 60 mínútum og raunar yfirleitt undir 30 mínútum samtals í innritun og öryggisleit. Til samanburðar má nefna að biðtími í röð á Kaupmannahafnarflugvelli er oft á annan klukkutíma á mestu álagstímum nú í sumar.

Úttekt á flugverndarþjónustu – fréttir stórlega ýktar

Flugvernd er öryggisstarf og reglulega eru gerðar úttektir innlendra og erlendra eftirlitsstofnana auk þess sem ástundað er öflugt innra eftirlit. Það er ekki óalgengt að upp komi ábendingar um úrbætur í þessum úttektum og í kjölfar þeirra gerum við oft breytingar á verklagi og/eða þjálfun. Isavia má lögum samkvæmt ekki tjá sig um niðurstöður þessara úttekta, þar sem hryðjuverkamenn gætu nýtt sér þær upplýsingar. Hins vegar getum við sagt að fréttir sem sagðar voru nýlega af úttekt hafi verið stórlega ýktar.“

Þá kemur fram í yfirlýsingu ISAVIA að starfsfólk þeirra hafi, eins og allir í ferðaþjónustu, fundið fyrir þeirri gríðarlegu aukningu á ferðamönnum sem orðið hefur á þessu ári. ISAVIA ber lof á starfsfólk sitt sem hefur staðið sig vel undir miklu álagi, eins og segir í yfirlýsingunni. Ýmislegt annað kemur fram í yfirlýsingu ISAVIA en hægt er að lesa yfirlýsinguna í heild sinni á vef ISAVIA.

Yfirlýsing ISAVIA í heild sinni.

Vigdís Hauksdóttir alþingiskona hefur gagnrýnt stjórn ISAVIA