Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Isavia gæti tekið yfir flugrútuna
Mánudagur 28. nóvember 2011 kl. 09:39

Isavia gæti tekið yfir flugrútuna

Isavia leggst gegn lagabreytingum sem treysta eiga grundvöll samninga Vegagerðarinnar við sveitarfélög um almenningssamgöngur. Félagið segir að fullt frelsi eigi að vera í flutningi fólks með rútum til og frá flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli en segir einnig koma til álita að félagið sjálft annist þessa flutninga. Frá þessu er greint á vef Morgunblaðsins.

Fyrir tveimur árum tóku sveitarfélögin á Suðurnesjum við sérleyfi til fólksflutninga á Suðurnesjum, með samningi við ríkisvaldið, og samþættu flutninga til og frá flugstöð og Reykjanesbæ við strætókerfið í sveitarfélögunum. Samningar við rútufyrirtækin sem önnuðust flutningana samkvæmt eldra útboði hafa verið endurnýjaðir en til hefur staðið að bjóða leiðirnar út að nýju.

Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, segir í samtali við mbl.is að þetta fyrirkomulag hafi reynst vel. Með því að samtengja áætlanir hafi verið hægt að bæta þjónustu við íbúa í sveitarfélögunum og starfsmenn flugstöðvarinnar, ekki síst seint á kvöldin og snemma á morgnana. Bætt kerfi hefur stóraukið notkun á almenningsvögnum á Suðurnesjum.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar er feitasti bitinn í þessu kerfi. Rútufyrirtæki hóf á síðasta ári samkeppni á þeirri leið og fékk aðstöðu í flugstöðinni eftir nokkurt þref.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024