Isavia fellir tímabundið niður notendagjöld á Keflavíkurflugvelli
Isavia hefur tilkynnt ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að félagið muni fella tímabundið niður notendagjöld á Keflavíkurflugvelli.
Með þessu styður félagið við viðskiptavini sína á fordæmalausum óvissutímum með það að markmiði að auðvelda flugfélögum að taka ákvarðanir um áframhaldandi flug til Íslands þrátt fyrir lakari sætanýtingu. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu gildir þessi ákvörðun á meðan að núverandi ferðabann borgara innan Schengen svæðisins til Bandaríkjanna varir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fagnar þessari ákvörðun.
„Með ákvörðun sinni leggur Isavia sitt lóð á vogarskálarnar með stjórnvöldum til að styðja við íslenska ferðaþjónustu á krefjandi tímum. Mikilvægt er að viðhalda öflugri flugstarfsemi sem er lykilþáttur í íslenskri ferðaþjónustu og efnahagslífi.“