HSS
HSS

Fréttir

Isavia ber að afhenda Kaffitári útboðsgögn
Miðvikudagur 15. júní 2016 kl. 13:32

Isavia ber að afhenda Kaffitári útboðsgögn

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál þess efnis að Isavia beri að afhenda Kaffitári útboðsgögn vegna leigu á veitingarými í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Í útboði á rými í flugstöðinni tók Kaffitár þátt en fékk því ekki úthlutað. Fyrirtækið krafðist þess í kjölfarið að fá að sjá niðurstöður og rökstuðning Isavia fyrir vali á öðrum fyrirtækjum. 

Í tilkynningu frá Isavia segir að félagið hafi talið nauðsynlegt að dómstólar myndu skera úr um það hvaða gögn teljist viðkvæm fjárhags- og viðskiptagögn í skilningi upplýsingalaga. Isavia hafi ekki talið rétt að birta viðkvæm viðskiptagögn fyrirtækjanna án dómsúrskurðar. Að mati Isavia er mikilvægt að niðurstaða hafi fengist í héraðsdómi en telur þó mikilvægt að hæstiréttur fái málið til efnislegrar meðferðar og endanlegrar niðurstöðu. Þá segir í tilkynningu Isavia að þær upplýsingar sem þátttakendur í forvalinu veittu í útboðsgögnum séu ólíkar og mun ítarlegri en þær upplýsingar sem bjóðendur í hefðbundnum opinberum útboðum veita.

Bílakjarninn
Bílakjarninn