Atnorth
Atnorth

Fréttir

Ís í sjoppu og stærri stólar og borð
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
sunnudaginn 15. ágúst 2021 kl. 15:20

Ís í sjoppu og stærri stólar og borð

Ungmennaráð Suðurnesjabæjar mun ræða íssölu í sjoppunni í Sandgerði á næsta fundi ráðsins. Þetta kemur fram í fundargerð frá síðasta fundi. Þá verður einnig rætt um stærri stóla og borð fyrir unglingastig í Gerðaskóla.

Umræður um lengri opnunartíma á hoppudýnunum fyrir ungmenni í Suðurnesjabæ fóru fram á síðasta fundi og ungmennaráð hefur falið starfsmanni að kanna málið hvort hægt að lengja opnunartíma hoppudýnanna.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Þá voru umræður og hugmyndir ræddar um nýja bæjarhátíð í Suðurnesjabæ. Ungmennaráð óskar eftir því að fá að funda með bæjarhátíðarvinnuhópnum.

Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025