HSS
HSS

Fréttir

Innri-Njarðvík: Börn hafa orðið fyrir aðkasti vegna lyktar
Miðvikudagur 18. september 2002 kl. 17:43

Innri-Njarðvík: Börn hafa orðið fyrir aðkasti vegna lyktar

Árna Sigfússyni, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, var í morgun afhent mótmælabréf frá um 95% íbúa Innri Njarðvíkur vegna starfsemi hausaþurrkunarinnar Laugafisks í hverfinu. Með undirskriftunum vilja undirritaðir íbúar Innri Njarðvíkur ítreka óviðunnandi ástand í Innri-Njarðvík vegna ólyktar af starfseminni sem fram fer í Laugafiski ehf., þungaflutningum um þéttbýli íbúanna og því óöryggi sem þessu iðnaðarsvæði fylgir. Þá segir að íbúar Innri Njarðvíkur hafi gengið þrautagöngu til að njóta jafnræðis í Reykjanesbæ. Málið hefur verið í vinnslu undanfarin ár og á meðan hafa þróast vandamál og afleiðingar vegna þeirra. Í bréfi með undirskriftunum til bæjarstjórans, segir m.a.:

“Almenningsvagnar í áætlunarferðum um Reykjanesbæ sem lenda í því að flytja starfsfólk Laugafisks ehf., eru ekki hæfir til almennra fólksflutninga nema að lokinni hreinsun á bifreiðum. Fasteignaverð í Innri-Njarðvík er lægra og ljóst að sölumöguleikar eru mun minni en annars staðar í Reykjanesbæ. Börn úr Innri-Njarðvík hafa orðið fyrir aðkasti vegna lyktar sem situr í fötum þeirra, s.s. í skólum og á fleiri félagslegum samkomum. Oft er lykt af fötum sem koma inn af snúrum og þarf því að þvo þau aftur. Oft á tíðum er ekki hægt að láta ungabörn sofa úti í kerrum. Óþefur er af fötum barna sem leika sér úti í grasinu á lóðum sem og á leiksvæðum Innri-Njarðvíkur. Þá hefur lyktarmengun frá Laugafiski haft áhrif á starfsemi á Leikskólanum Holti á svæðinu og starfsfólks skólans ítrekað bent á óþægindi vegna lyktarmengunnar." Umhverfisráðuneytinu hefur jafnframt verið sent sama erindi með ósk um að tekið verði á málinu. Heilbrigðisnefnd Suðurnesja hefur einnig fengið erindi íbúanna inn á borð til sín. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, upplýsti í morgun að fyrirtækið ætlaði að hætta
starfsemi í Innri Njarðvík. Það hafi hins vegar óskað eftir tímamörkum, sem bæjaryfirvöld sættu sig ekki við. Málið væri nú til meðferðar hjá yfirvöldum.


Bréf íbúanna er svohljóðandi, orðrétt:
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja og aðrir þessu máli viðkomandi
Fitjum Njarðvík

Innri Njarðvík, 14. september 2002.
Ágætu viðtakendur.

Með bréfi þessu vilja undirritaðir íbúar Innri Njarðvíkur ítreka óviðunnandi ástand í Innri-Njarðvík vegna ólyktar af starfseminni “fiskþurrkun”, sem fram fer í Laugafisk ehf., þungaflutningum um þéttbýli íbúana sem þeirri starfsemi fylgir og því óöryggi sem þessu iðnaðarsvæði fylgir. Undirritaðir íbúar Innri Njarðvíkur höfum gengið þrautagöngu til að njóta jafnræðis í Reykjanesbæ. Málið hefur verið í vinnslu undanfarin ár og á meðan hafa þróast eftirfarandi vandamál og eftirfarandi afleiðingar vegna þeirra:
• Almenningsvagnar í áætlunarferðum um Reykjanesbæ sem lenda í því að flytja starfsfólk Laugafisks ehf., eru ekki hæfir til almennra fólksflutninga nema að lokinni hreinsun á bifreiðum.
• Fasteignaverð í Innri-Njarðvík er lægra og ljóst að sölumöguleikar eru mun minni en annars staðar í Reykjanesbæ.
• Börn úr Innri-Njarðvík hafa orðið fyrir aðkasti vegna lyktar sem situr í fötum þeirra, s.s. í skólum og á fleiri félagslegum samkomum.
• Oft er lykt af fötum sem koma inn af snúrum og þarf því að þvo þau aftur.
• Oft á tíðum er ekki hægt að láta ungabörn sofa úti í kerrum.
• Óþefur er af fötum barna sem leika sér úti í grasinu á lóðum sem og á leiksvæðum Innri-Njarðvíkur.
• Þá hefur lyktarmengun frá Laugafisk haft áhrif á starfsemi á Leikskólanum Holti á svæðinu og starfsfólks skólans ítrekað bent á óþægindi vegna lyktarmengunnar.
• Þar sem aðeins er ein aðkoma að þessu “iðnaðarsvæði” eru gámaflutningar m.a. fiskflutningar daglegir um íbúðarbyggðina (þéttbýlið). Með tilliti til öryggis íbúanna samræmist það ekki umferðarreglum/samþykktum Reykjanesbæjar (sjá heimasíðu “rnb.is”)
• Á nýliðnu sumri hafa íbúar ekki getað notið góðs veðurs á verönd sinni, eins og aðrir íbúar í Reykjanesbæ, því jafnt á nóttu sem degi er hráefnið þurrkað og vindáttin/lognið á slíkum góðviðrisdögum afar óhagstætt okkur íbúunum.
• Þá hafa íbúar kvartað um vanlíðan eftir að hafa verið úti við viðhaldsstörf og hefðbundin sumarverk á eignum og lóðum sínum.
• Undirritaðir ítreka að þessi listi er ekki á nokkurn hátt tæmandi en ætti þó að varpa ljósi á alvöru málsins.

Undirritaðir vona að yfirvöld sjái til þess að við fáum notið þeirra skilyrða sem við má búast í nútíma samfélagi, jafnt og aðrir íbúar í Reykjanesbæ. Fullreynt er að fiskþurrkun í nálægð við íbúabyggð mun ávallt valda íbúunum miklu ónæði.
Að auki leggjum við áherslu á að við endurskoðun á aðalskipulagi á svæðinu, verði umrætt iðnaðarsvæði við Tjarnargötu og Njarðvíkurgötu víkandi fyrir þjónustu og eða íbúabyggð.
Undirritaðir skora á stjórnvöld að bregðast rétt við og beita sér fyrir því að uppfylla óskir íbúa svæðisins þannig að vellíðan, jafnræði og réttur íbúanna verið í fyrirrúmi.

Með von um farsæla lausn,
undirritaðir íbúar Innri Njarðvíkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn