Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Innlán í Sparisjóðnum eru tryggð
Þriðjudagur 7. október 2008 kl. 15:42

Innlán í Sparisjóðnum eru tryggð

„Sparisjóðurinn í Keflavík heldur sjó í því ölduróti sem íslenska bankakerfið er í og engar meiriháttar breytingar eru fyrirhugaðar á starfsseminni.“ Þetta segir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri, aðspurður um stöðu Sparisjóðsins í þeirri fjármálakreppu sem skollið hefur á með það miklum krafti að þingið þurfti að grípa til þess að setja neyðarlög í gærkvöldi.
 
Engar stórkostlegar breytingar hjá Spkef

Geirmundur segir að eins og allar aðrar fjármálastofnanir glími Sparisjóðurinn við erfiða lausafjárstöðu en það kalli ekki á stórkostlegar breytingar á starfsemi bankans. Aðgerðir stjórnvalda miði fyrst og fremst að því að tryggja innstæður landsmanna og hafi það margoft komið fram í ræðu og riti.

„Þetta er auðvitað ótrúleg og sorgleg staða sem nú er komin upp í bankakerfinu. Frumvarpið sem forsætisráðherra lagði fram veitir fjármálaráðherra heimild til að veita fé til sparisjóðanna þannig að það er greinilega vilji stjórnvalda að þeir haldi áfram að starfa sterkir eins og þeir hafa verið fram að þessu. Innstæður allra í sparisjóðnum eru því tryggðar.“

Heyrst hefur að fólk hafi tekið út af reikningum sínum í bönkunum til að geyma reiðufé undir koddanum og benti Geirmundur á að með því séu viðskiptavinir að tapa innlánsvöxtum sem séu verulega háir í dag. Ef allt fer á versta veg og bankakerfið hrynur þá njóti seðlar engrar ríkistryggingar og verði því verðminni en innstæður.

Munum standa af okkur þessar hamfarir

Aðspurður um áhrif aðgerða stjórnvalda á starfsemi sparisjóðsins segir Geirmundur þær óljósar eins og málum er nú komið. „Það hefur út af fyrir sig ekkert gerst hér hjá okkur hvað þetta varðar. Við finnum auðvitað eins og aðrir fyrir þessari alþjóðlegu kreppu sem kemur aðallega fram í þungri lausafjárstöðu. Hlutabréf í okkar eigu lækkuðu einnig í verði og af þeim sökum fengum við nokkurn skell í sex mánaða uppgjörinu. Sparisjóðurinn hefur ekki enn leitað á náðir stjórnvalda til að styrkja stöðu okkar heldur höfum við verið að glíma við þetta af eigin rammleik. Við munum standa af okkur þessar hamfarir og trúum ekki öðru en að viðskiptavinir okkar og samfélagið sem við höfum starfað með í rúm 100 ár standi með okkur. Það skiptir öllu máli að fólk hafi tiltrú á bankakerfinu og haldi ró sinni á meðan þetta gengur yfir.  Sparisjóðurinn er ekki að fara neitt,“ segir Geirmundur.

Í upphafi árs fór Sparisjóðurinn í hagræðingaraðgerðir sem snúa að ýmsum þáttum í  starfseminni á öllum starfsstöðvum hans. Aðgerðir þessar hafa m.a. leitt til fækkunar starfsmanna um 18 stöðugildi sem er um 13% fækkun.  Afgreiðslustöðum á Borðeyri og í Borgartúni hefur verið lokað og annar rekstrarkostnaður hefur verið skorinn verulega niður. Þessum hagræðingaraðgerðum verður auðvitað haldið áfram og ítrasta aðhalds gætt í rekstri, segir Geirmundur.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024