Innileikjagarður opnaður á Vallarheiði
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar í samvinnu við Háskólavelli ehf mun opna sérútbúinn leikvöll sem staðsettur er í húsinu númer 778 við Víkingabraut á Vallarheiði/Ásbrú. Þetta er tilraunaverkefni í 3 mánuði sem mun standa yfir til 1. júní 2009.
Við hliðina ( í byggingu 770) er rúlluskautahöll sem verður einnig opinn á sama tíma og innileikvöllurinn.
Opnunartími er 14:00-17:00 alla daga. Starfsmaður ÍT sviðs verður á staðnum á þessum tíma, en foreldrar/forráðamenn verða að vera með börnum sínum á meðan þau dvelja á innileikvellinum. Aðgangur er ókeypis.