Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Innbrotum fækkar um 31%
Mánudagur 5. nóvember 2012 kl. 01:45

Innbrotum fækkar um 31%

Samkvæmt bráðabirgðatölum hafa 72 innbrot verið skráð hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum það sem af er ári. Á sama tíma árið 2011 voru 105 innbrot skráð hjá embættinu og hefur þeim því fækkað um 31% á milli ára.

Meðalfjöldi innbrota árið 2011 var 10,9 á mánuði eða samtals 131 brot allt árið í fyrra. Það sem af er árinu nú er meðalfjöldi innbrota í mánuði 7,2. Allt frá árinu 2010 hefur fjöldi innbrota farið fækkandi hjá embættinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024