INNBROTUM FÆKKAR Á SUÐURNESJUM
Verulega hefur dregið úr skemmdarverkum og innbrotum. Í ágúst- og septembermánuði var ástandið með versta móti, hvað þetta varðar, og enginn bifreiðaeigandi var óhultur fyrir skemmdarvörgum. Hjá lögreglu fengust einnig þær upplýsingar að helgin hafi verið róleg og lítið um ölvunarakstur og slagsmál.