Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Innbrotsþjófur tekinn með amfetamín
Mánudagur 16. janúar 2017 kl. 11:34

Innbrotsþjófur tekinn með amfetamín

Karlmaður sem braust inn í íbúðarhúsnæði í Keflavík aðfararnótt laugardags reyndist vera með meint amfetamín í fórum sínum þegar lögreglan á Suðurnesjum kom á vettvang. Maðurinn hafði komist inn í húsnæðið með því að brjóta rúðu. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð og fíkniefnin haldlögð.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024