Innbrot við Íslólfsskála
Tilkynnt um innbrot og þjófnað í sumarbústað við Ísólfsskála, austan Grindavíkur til lögreglunnar á Suðurnesjum í gær. Höfðu þjófarnir á brott með sér verkfæri, auk bjórdósa og gosdrykkja.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um mannaferðir við bústaðinn síðan á sunnudag, eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Mynd: Frá Ísólfsskála. Mynd úr safni.
.